Grunur um Listeríu í frosnum maísbaunum
Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum maísbaunum vegna gruns um listeríu. Um er að ræða tvær vörutegundir frá framleiðandanum Greenyard með uppruna í Ungverjalandi innfluttar af Madsa ehf. Matvælasstofnun fékk upplýsingar um innköllunina í gegnum RASFF evrópska hraðviðvörunarkerfi um hættuleg matvæli á markaði. Madsa ehf. hefur í samráði við Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík innkallað eftirtaldar vörur:
GRE034 Maískorn
PINGUIN SWEET CORN KERNELS
2,5 kg pokar
Frystivara
Strikamerki: 5411683230588
Lotunúmer : öll lotunúmer framleidd milli 13. ágúst 2016 til 20. Júní 2018.
GRE133 Mexíkóblanda
PINGUIN MEXICAN MIXED VEGETABLES
2,5 kg pokar
Frystivara
Strikamerki: 5411683232117
Lotunúmer : öll lotunúmer framleidd milli 13. ágúst 2016 til 20. Júní 2018.
Dreifing: Vörurnar voru seldar til ýmissa stóreldhúsa, mötuneyta og Stórkaups.
Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta ekki vörunnar og hafa samband við Madsa í síma 517-2727 eða madsa@madsa.is
Á heimasíðu Matvælastofnunar má lesa nánar um listeríu.