Fara í efni

Ólöglegt skordýraeitur í baunum

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun varar við neyslu á TRS Asia´s finest foods black eye beans sem Lagsmaður ehf. og Kína Panda ehf. flytja inn vegna þess að það greindist ólöglegt varnarefni (chlorpyrifos) í baununum. Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar, Garðarbæjar og Kópavogs (HHGK) og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HSN) aðstoða fyrirtækin með innköllun.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vörurnar í gegnum evrópska hraðviðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á markaði og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu með best fyrir dagsetningu 30.04.2022:

  • Vörumerki: TRS Asia's finest foods
  • Vöruheiti: Black eye beans
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf.
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: P70463 með best fyrir dagsetningu 30.04.2022
  • Dreifing: Fiska.is, verslanir Fiska.is á Nýbýlavegi 6 í Kópavogi og Lóuhólum 2 Reykjavík, ásamt Kína Panda ehf. í Keflavík.

Black eye peas

Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna er bent á að farga henni eða skila til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt. Frekari upplýsingar eru veittar á netfanginu fiska@fiska.is.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?