Díoxín í eggjum
Innkallanir -
27.11.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofnun varar við neyslu á eggjum frá Landnámshænum ehf. Fyrirtækið hefur með aðstoð Matvælastofnunar innkallað allar lotur í varúðarskyni af eggjum vegna díoxíns yfir leyfilegum mörkum.
Nánar um vöruna:
- Vöruheiti: Landnámsegg, 7 stykki í pakkningu
- Best fyrir dagsetning: allar lotur
- Framleiðandi: Landnámsegg ehf, Austurvegur 8, 630 Hrísey
- Dreifing: Melabúð, Hríseyjarbúð og Fjarðakaup
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar á facebook síðu fyrirtækisins og hægt að senda fyrirspurn á tölvupóst á kelahus@simnet.is.