Aðskotahlutur í mexíkóskri kjúklingasúpu
Innkallanir -
30.11.2020
Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.
Matvælastofun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af mexíkóskri kjúklingasúpu merkt Krónunni vegna aðskotarhlutar (glerbrots). Fyrirtækið með hjálp heilbrigðiseftirlitsins hefur innkallað súpuna. Matvælastofnun fékk upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík um innköllunina.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Mexíkósk kjúklingasúpa
- Strikanúmer: 5694311800470
- Vörunúmer: 14335
- Nettó þyngd: 1 lítri
- Framleiðsludagur: 06.11.2020
- Best fyrir: 06.03.2021
- Framleiðandi: IMF ehf.
- Framleiðsluland: Ísland
- Dreifing: Verslanir Krónunnar
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í framangreindum verslunum er bent á að skila þeim í viðkomandi verslun. Nánari upplýsingar veitir IMF ehf., imfehf@imfehf.is.