Fara í efni

Aðskotahlutur í MARS súkkulaði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun barst tilkynning í gegnum hraðviðvörunakerfi Evrópu, RASFF um plast-aðskotahlut í MARS súkkulaði. Innflytjandi súkkulaðsins, Sláturfélag Suðurlands, hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, tekið af markaði og innkallað frá neytendum eftirfarandi matvæli:
 

  • Vöruheiti: Mars 5+1
  • Strikanúmer: 5000159452687
  • Best fyrir: 04.09.2016
  • Nettóþyngd: 270 g.
  • Framleiðandi: Mars Denmark A/S
  • Framleiðsluland: Holland
  • Dreifing: Verslanir Bónus um allt land.

  • Vöruheiti: Mars x4
  • Strikanúmer: 5000159384186
  • Best fyrir: 04.09.2016
  • Nettóþyngd: 180 g.
  • Framleiðandi: Mars Denmark A/S
  • Framleiðsluland: Holland
  • Dreifing: Kostur, Fjarðarkaup, Melabúðin, KS Sauðarkróki, Stórkaup og verslanir Krónunnar, Hagkaups, Víðis, Nóatúns, Samkaupa og Nettó.

Ofangreindar upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við.

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að hægt er að skila henni í þá verslun sem hún var keypt í. Frekari upplýsingar fást hjá Sláturfélagi Suðurlands í síma 575 6000.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?