Fara í efni

Tillaga að endurnýjun rekstrarleyfis Arnarlax í Fossfirði, Arnarfirði

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að endurnýjun á rekstrarleyfi Arnarlax ehf. vegna fiskeldis í sjókvíum í Fossfirði, Arnarfirði. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga þar sem hámarkslífmassi miðast við 1.500 tonn af laxi.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 17. október 2022.

 Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?