Fara í efni

Ríkið keypti og seldi mjólkurkvóta fyrir um 67 milljónir króna

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Á fjórða og síðasta innlausnardegi fyrir greiðslumark mjólkur þann 1. nóvember 2017 óskuðu 10 bú eftir að ríkið innleysti greiðslumark, samtals 488.284 lítra, að upphæð 67.383.192 krónur. Gild kauptilboð komu frá 35 framleiðendum og var alls óskað eftir að kaupa 1.824.310 lítra, að upphæð 251.754.780  krónur.

Matvælastofnun annast innlausn greiðslumarks í samræmi við samning um starfsskilyrði í nautgriparækt sem tók gildi 1. janúar 2017. Innlausn greiðslumarks fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert. Á árinu 2017 er innlausnarvirði greiðslumarks mjólkur er 138 krónur fyrir hvern lítra mjólkur. Samkvæmt fyrrnefndum samningi ríkis við bændur skulu framleiðendur sem eru nýliðar eða hafa framleitt a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem Matvælastofnun innleysir á innlausnardegi. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna í samræmi við 10. gr. reglugerðar nr. 1150/2016 um stuðning við nautgriparækt. Potturinn skiptist hlutfallslega í samræmi við það magn sem óskað var eftir af framleiðendum í fyrrgreindum hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti.

Á innlausnardeginum 1. nóvember var 122.070 lítrum úthlutað til 25 framleiðenda úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti og jafn mörgum lítrum til 3ja framleiðenda úr forgangspotti 2, nýliðunarforgangi. Að síðustu var 244.144  lítrum úthlutað úr almennum potti.  


Getum við bætt efni síðunnar?