Fara í efni

Endurnýjun rekstrarleyfis Hólaskóla til fiskeldis í Hjaltadal

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Hólaskóla – Háskólans á Hólum í Hjaltadal í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 2. nóvember 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 30. nóvember 2020.

Hólaskóli – Háskólinn á Hólum sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 20 tonna lífmassa á klak-, seiða- og áframeldi á bleikju í landeldisstöð sinni, Bleikjukynbótastöðinni á Hólum. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 17. janúar 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Hólaskóla – Háskólans á Hólum FE-1155 í Bleikjukynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?