Fara í efni

Útgáfa rekstrarleyfis vegna fiskeldis til Laxa eignarhaldsfélags ehf. í Þorlákshöfn

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun hefur veitt Löxum eignarhaldsfélagi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laxabraut 9 - 11, Þorlákshöfn. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 20. september 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 10. október 2021.

Laxar eignarhaldsfélag sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 2.500 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á laxi að Laxabraut 9 - 11, Þorlákshöfn. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 20. apríl 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Laxa eignarhaldsfélags, FE-1184, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?