Eftirlitsdýralæknir óskast í Suðausturumdæmi
Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra á Íslandi?
Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni í Suðausturumdæmi með aðsetur á Selfossi. Um 100% starf er að ræða og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.
Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Einnig sinnir hann heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun og gilt dýralæknaleyfi á Íslandi
- Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jarle Reiersen, héraðsdýralæknir, á netfanginu jarle.reiersen@mast.is eða í síma 530-4800. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 13. maí 2024. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.