Fara í efni

Greiðsla framlags til vatnsveituframkvæmda árið 2020

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Í dag 15. febrúar greiðir Matvælastofnun alls 19.040.423 kr. í vatnsveitustyrki vegna framkvæmda við vatnsveitu á lögbýli árið 2020. 25 umsækjendur fengu úttekt á framkvæmdum samþykkta en alls voru samþykktar umsóknir frá 40 lögbýlum en ýmist var framkvæmdum frestað eða ekki lokið þegar fresti til úttektar lauk. Þeir aðilar geta sótt um að nýju fyrir árið 2021.

Greiðsla framlagsins kemur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að fengnu samþykki sjávarútvegs- og landbúnarráðherra í samræmi við reglugerð.

Matvælastofnun minnir á að umsóknarfrestur fyrir árið 2021 er til og með 28. febrúar n.k. og er sótt um í þjónustugátt MAST.

Ítarefni


Getum við bætt efni síðunnar?