Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum um fjárfestingastuðning í svínarækt

Athugið að þessi frétt er ársgömul eða eldri.

Matvælastofnun auglýsir eftir umsóknum um fjárfestingastuðning í svínarækt. Í samræmi við reglugerð um almennan stuðning við landbúnað, VII. kafla skal umsóknum um fjárfestingastuðning vegna framkvæmda á árunum 2017-2018 skilað inn rafrænt í Þjónustugátt Matvælastofnunar eigi síðar en 31. mars n.k.

Markmið stuðningsins er að auðvelda sérstaklega smærri svínabúum að hraða því að standast kröfur reglugerðar um velferð svína.

Skilyrði fyrir veitingu fjárfestingastuðnings er að finna í 33. gr. reglugerðarinnar og eru vegna:

a. Nýbygginga eða viðbygginga.
b. Endurbóta á eldri byggingum, þar sem skipt er út meira en 50% af innréttingum.
c. Kaupa á innréttngum og búnaði.

Fjárfestingastuðningur fyrir hvern framleiðanda getur að hámarki numið 40% af stofnkostnaði ef heildarkostnaður fer yfir eina milljón króna.


Getum við bætt efni síðunnar?