Fara í efni

Alvarleg vanræksla á nautgripum kærð til lögreglu

Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á nautgripum á lögbýli á Norðurlandi vestra.

Við eftirlit sem framkvæmt var með aðstoð lögreglu fundust 29 dauðir nautgripir í gripahúsi. Í kjölfarið aflífuðu starfsmenn stofnunarinnar 21 grip til viðbótar á staðnum sökum slæms ástands, allt gripir sem voru hýstir í húsinu. Aðrir nautgripir, sem hafði verið haldið úti við, voru hýstir yfir nóttina, en síðan voru þeir færðir til slátrunar daginn eftir. Hræjum og skrokkum hefur þegar verið fargað á viðurkenndum urðunarstað.

Matvælastofnun hefur svipt umráðamanninn heimild til dýrahalds tímabundið, eða þar til dómur fellur í málinu. Í kæru til lögreglu gerir stofnunin þá kröfu að umráðamaður verði með dómi sviptur heimild til að hafa búfé í umsjá sinni, versla með þau eða sýsla með þau með öðrum hætti.

Málið er nú til frekari rannsóknar hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra.


Getum við bætt efni síðunnar?