Fara í efni

Orkudrykkir

Svokallaðir orkudrykkir eru drykkir sem neytt er með það að markmiði að ná fram örvandi áhrifum. Þetta samheiti getur verið þó villandi þar sem það gefur til kynna að um orkugefandi drykki sé að ræða. Svokallaðir orkudrykkir innihalda samt ekki meiri orku, þ.e. hitaeiningar, en margir aðrir drykkir og í dag eru flestir orkudrykkir í raun hitaeiningasnauðir. Svokallaðir orkudrykkir innihalda allir koffín og flestir innihalda þar að auki önnur virk efni, svo sem ginseng eða útdrætti (e. extract) úr öðrum plöntum. Auk þess er algengt að þessir drykkir innihalda vatnsleysanleg vítamín, amínosýrur auk tauríns, inositols og glucuronolactons. 

Engar skilgreiningar enn

Engin almenn skilgreining er til fyrir svokallaða orkudrykki og innan Evrópu eru hvorki samræmdar reglur um hvaða efni þessir drykkir mega innihalda né í hvaða magni. Það sem sameiginlegt er með öllum orkudrykkjum er koffín. Heiti vöru gefur oft ekki til kynna að um orkudrykk er að ræða heldur þarf að lesa vel innihaldslýsingu vörunnar. Flestir svokallaðir orkudrykkir á markaði á Íslandi innihalda engan sykur heldur sætuefni og í dag eru til á markaði orkudrykkir sem innihalda mjög hátt magn koffíns eða meira en almennt er leyfilegt (320 mg/l). Þessir drykkir eru háð leyfi frá Matvælastofnun.

Orkudrykkir - almenn matvæli

Svokallaðir orkudrykkir eru ekki svaladrykkir í venjulegum skilningi. Þeir eru í raun hannaðir og framleiddir fyrir sérstakan markhóp með ákveðin áhrif í huga. Þrátt fyrir þetta eru þeir flokkaðir sem almenn matvæli en undir reglugerð nr. 327/2010. Vörur sem falla hér undir eru matvæli með íblönduðum bætiefnum. Orkudrykkir innihalda oft koffín ásamt vítamínum, steinefnum og öðrum efnum.

Hvaða reglur gilda um koffínmagn?

Hámarksmagn koffíns í orkudrykkjum (óáfengum drykkjarvörum) er 320 mg/l eða 32 mg/100ml.

Hámarksgildið tekur til heildarmagns koffíns í vörum og breytir þá engu hvort um er að ræða íblöndun hreins koffíns, útdrátta (e. extract) eða náttúrulega koffíngjafa. 

Óheimilt er að framleiða, markaðssetja eða flytja inn orkudrykki þar sem heildarmagnið er meira en 320 mg/l (eða 32 mg/100ml) nema með sérstöku leyfi frá Matvælastofnun. Hér má lesa um leyfisveitingu

Merkingar

Fyrir orkudrykki sem innihalda 150 mg/l af koffíni eða meira eru gerðar sérstakar kröfur um að vörurnar séu merktar með orðunum:

  •  „Inniheldur mikið af koffíni. Ekki æskilegt fyrir börn eða barnshafandi konur eða konur með barn á brjósti“ og þar á eftir koma upplýsingar um magn koffíns í mg/100 ml. 

Þessar merkingar skulu vera á íslensku.

Fyrir drykkjavörur sem innihalda meira magn koffíns en 320 mg/l (eða 32 mg/100ml) og hafa fengið leyfi frá Matvælastofnun er gerð krafa um sérstakar varúðarmerkingar. Hér má lesa um kröfur Matvælastofnunar

Orkudrykkur - vinsæll svaladrykkur ungmenna

Samkvæmt niðurstöðum kannana hjá Rannsóknum og greiningu við Háskólann í Reykjavík varð mikil aukning í neyslu orkudrykkja bæði hjá nemendum í 8.-10. bekk grunnskóla og hjá nemendum í framhaldsskólum milli áranna 2016 og 2018. Hlutfall nemenda í 8.-10. bekk sem neyddi orkudrykkja daglega árið 2018 var 28% en 16% árið 2016. Dagleg neysla orkudrykkja eykst með hækkandi aldri og var hlutfall framhaldsskólanema sem neyddi orkudrykkja daglega eða oftar 55% árið árið 2018 en 22% árið 2016. Aukningin er því umtalsverð. Í rannsókninni kom jafnframt fram að 78% þeirra sem sofa of lítið (um 7 klukkustundir eða minna) drekka daglega 4 eða fleiri orkudrykki sem innihalda koffín.

Áhrif koffíns í orkudrykkjum

Innihaldsefni í svokölluðum orkudrykkjum geta verið nokkuð mismunandi eftir drykkjartegund og magn einstakra innihaldsefna er afar breytilegt.
 

Koffín getur haft ýmis óþægileg áhrif á líðan fólks, svo sem hjartsláttartruflanir, svefnleysi og jafnvel kvíðatilfinningu ef koffíns er neytt í stórum stíl. Börn eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðið fólk og því þykir neysla koffíns óæskileg fyrir börn. 

Orkudrykkir og áfengi

Ýmsar matvælastofnanir í Evrópu hafa gefið út tilmæli um að takmarka neyslu svokallaðra orkudrykkja, sérstaklega þeirra drykkja sem innihalda taurín og glucuronlacton ásamt koffíni. Þessi viðvörun var gefin út í ljósi niðurstaðna sænskrar rannsóknar þar sem sýnt var fram á að ef áfengi er blandað með orkudrykkjum eða þeirra neytt samhliða mikilli hreyfingu getur það valdið alvarlegum hjartsláttartruflunum sem í versta falli geta leitt til skyndilegs dauðsfalls. Þrátt fyrir að þörf sé á enn ítarlegri rannsóknum er engu að síður ráðlagt að slökkva ekki þorsta með orkudrykkjum né blanda þeim út í áfengi.
 

Markaðssetningu svokallaðra orkudrykkja er yfirleitt beint að ungu athafna- og/eða íþróttafólki. Þess vegna er ungt fólk aðaláhættuhópurinn þegar kemur að ofneyslu svokallaðra orkudrykkja.

Ítarefni

Uppfært 26.09.2024
Getum við bætt efni síðunnar?