Fara í efni

Eftirlitsdýralæknir í Norðausturumdæmi óskast til starfa tímabundið

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra og standa vörð um matvælaöryggi á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til afleysingastarfa í Norðausturumdæmi með aðsetur á Akureyri. Um er að ræða 100% starf til 31. janúar 2025 með möguleika á framlengingu. Æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Einnig sinnir hann heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og gilt dýralæknaleyfi á Íslandi
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sif Sigurðardóttir, héraðsdýralæknir, á netfanginu sif.sigurdardottir@mast.is eða í síma 530 4800.  Sótt er um starfið á Starfatorgi.

Umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af prófskírteini og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2024. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.


Getum við bætt efni síðunnar?