Fara á forsíðu
LÖG OG REGLUR - MATVÆLALÖGGJÖF EES

Breytingar á matvæla- og fóðurlöggjöf

 

Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit gekk í gildi í Evrópu árið 2006 og með samþykkt laga nr. 143/2009  er komið að innleiðingu hennar hérlendis þar sem sama löggjöf á að gilda um matvæli í öllum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Löggjöfin fjallar um eftirlit og hollustuhætti í matvæla- og fóðurframleiðslu og á Íslandi verða reglugerðir ESB innleiddar orðréttar sem fylgiskjöl með sérstökum gildistökureglugerðum.


Fræðsluefni:


Breytingarnar taka gildi 1. mars 2010, ef frá eru taldar breytingar vegna búfjárafurða sem taka gildi 1. nóvember 2011. Reglugerð  EB nr. 178/2002, oft nefnd hin almennu matvælalög EB, myndar þann grunn sem hin nýja matvælalöggjöf Evrópusambandsins byggir á. 

Markmið reglugerðarinnar er að vernda líf og heilsu manna og tryggja jafnframt frjálst flæði vöru á EES svæðinu. Reglugerðin tekur einnig til fóðurs og skapar grundvöll fyrir breytingar á fyrirkomulagi matvæla- og fóðureftirlits hér á landi og í Evrópusambandinu, þ.e. heildarsýn á matvæli og fóður frá hafi/haga til maga. Sömu reglur gilda um hollustuhætti óháð því hvort um er að ræða framleiðslu eða dreifingu á kjöti, fiski, matjurtum eða unnum matvælum. Hagsmunir neytenda eru settir í öndvegi og munu reglur um rekjanleika matvæla leika stórt hlutverk. Með þeim mun verða mögulegt að rekja feril matvæla á öllum stigum framleiðslu og dreifingar. Ábyrgð framleiðenda og dreifingaraðila gagnvart neytendum matvæla er dregin skýrt fram.
 
Í kjölfar reglugerðar nr. 178/2002 hafa verið gefnar út þrjár reglugerðir um hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla og fóðurs og tvær um opinbert eftirlit með matvælum og fóðri sem allar voru teknar upp í samninginn um EES með fyrrnefndum ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Bæði 178/2002 og afleiddar gerðir hér að neðan hafa nú verið innleiddar í samræmi við orðanna hljóðan.



Þá er sömuleiðis vert að benda á eftirfarandi afleiddar gerðir sem byggja á reglugerð nr. 178/2002 og verða með sama hætti innleiddar skv. orðanna hljóðan:

 

  • 1774/2002/EB um aukaafurðir dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis
  • 2073/2005/EB um örverufræðileg viðmið fyrir matvæli
  • 2074/2005/EB um frekari innleiðingu á ákvæðum gerða um hollustuhætti matvæla og opinbert eftirlit
  • 2076/2005/EB um aðlögunartíma vegna innleiðingar gerða um hollustuhætti matvæla og opinbert eftirlit

 

Reglugerðir nr. 2074/2005/EB og 2076/2005/EB eru jafnframt breytingar á reglugerðum nr. 853/2004/EB og 854/2004/EB.

 

Mjög mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar kynni sér þessar breytingar sem unnið er að varðandi matvælalöggjöf hérlendis, hvort heldur sem þeir eru framleiðendur matvæla eða fóðurs, heildarsamtök fyrirtækja eða eftirlitsaðilar og leggi niður fyrir sér hvaða þýðingu hún hefur fyrir starfsemina. Hér á síðunni er safn grunnupplýsinga um þær breytingar sem fyrirhugaðar eru á matvælalöggjöfinni, en hafir þú spurningar getur þú haft samband við eftirtalda aðila:


 

Einnig má senda fyrirspurn á mast@mast.is merkta “ný matvælalöggjöf”



Erlendar heimasíður:


    Matvælaöryggisstofnun Evrópu/EFSA

 

    Umfjöllun um matvælaöryggi á vef Evrópusambandsins


Upplýsingar

Fróðleikur frá A-Ö

A Á B C D E É F
G H I Í J K L M
N O Ó P R S T U
Ú V X Y Ý Þ Æ Ö

Spurt og Svarað