Sníklalyfið fipronil í hollenskum eggjum

Í síðustu viku bárust upplýsingar frá Evrópu um að
sníklalyfið fipronil hafi greinst í eggjum í Hollandi. Dreifing eggja frá ákveðnum eggjaframleiðendum var stöðvuð í
kjölfarið. Heil egg á markaði
hérlendis eru af íslenskum uppruna. Unnar eggjaafurðir, t.d.
gerilsneyddar eggjarauður, eggjahvítur og eggjaduft eru fluttar til landsins og
samkvæmt athugun Matvælastofnunar eru þær upprunnar í Bretlandi, Danmörku,
Hollandi og Þýskalandi. Ekki hafa borist tilkynningar frá Evrópska
viðvörunarkerfinu (RASFF) um að menguðum eggjaafurðum hafi verið dreift til
landsins. Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur eru nú að kanna
uppruna þeirra eggja sem notuð voru í eggjaafurðir sem fluttar hafa verið til
landsins frá framangreindum EES-ríkjum og munu ef ástæða er til stöðva
dreifingu þeirra.
Ein sending af eggjarauðudufti frá Hollandi var að berast til landsins og
hefur framleiðandi vörunnar upplýst að hráefni í hana komi ekki frá þeim eggjaframleiðendum
sem hafi notað sníklalyfið fipronil. Áður en til dreifingar kemur mun Matvælastofnun
afla frekari upplýsinga um uppruna og gæði hráefna í þeim tilgangi að tryggja
öryggi afurða.
Fipronil er lyf sem er m.a. notað til meðhöndlunar gegn
sníkjudýrum á gæludýrum. Ekki er heimilt
að nota lyfið á dýr sem sem gefa af sér afurðir til manneldis. Samkvæmt upplýsingum
frá Lyfjastofnun er efnið flutt inn í óverulegu magni til meðhöndlunar á gæludýrum. Matvælastofnun
er ekki kunnugt um að umrædd sníkjudýr, rauðir hænsnamítlar, séu að valda
vandræðum hjá eggjaframleiðendum hér á landi, en hins vegar hafa þau fundist á
hænum í eigu einstaklinga.
Aðskotaefnaáætlun landbúnaðarafurða hjá Matvælastofnun tekur
m.a. mið af sýnatökum og prófunum á afurðum með hliðsjón af magni innfluttra lyfja
og því hefur greining á efninu fipronil ekki verið hluti af henni. Hámarksgildi fipronils í eggjum er
0,005 mg/kg. Einkenni eitrunar geta verið ógleði, magaverkir, svimi, uppköst og
flogaköst. Til langs tíma getur efnið valdið lifrar- og nýrnaskaða.
Erlendar stofnanir hafa framkvæmt áhættumat vegna þessa máls
og hér fyrir neðan eru tenglar í áhættumat og umfjöllun BfR, sem er
áhættumatstofnun Þýskalands, auk umfjöllunar sænsku og dönsku matvælastofnunarinnar
um málið.
- Áhættumat BfR
- Umfjöllun BfR
- Umfjöllun sænsku matvælastofnunarinnar
- Umfjöllun dönsku matvælastofnunarinnar