Upptaka af námskeiði um merkingar matvæla

16.02.2015
Fréttir -
Matvælaöryggi
Mikil aðsókn var í námskeið Matvælastofnunar um merkingar matvæla í tengslum við nýinnleidda reglugerð um miðlun upplýsinga um matvæli til neytenda. Alls sóttu u.þ.b. 160 manns námskeiðin tvö, auk þeirra sem nýttu sér netútsendingu. Birtar hafa verið glærur og upptaka frá síðara námskeiðinu á vef stofnunarinnar undir Útgáfa - Fræðslufundir.