Óheilnæmar aðstæður við framleiðslu á bræðingi

12.04.2013
Fréttir -
Innkallanir
Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um framleiðslu á Krónu bræðingi við óheilnæmar aðstæður. Fyrirtækið hefur stöðvað sölu á vörunni og innkallað hana af markaði.
- Vörumerki: Krónan.
- Vöruheiti: Bræðingur.
- Strikanúmer: 2700000955536.
- Nettóþyngd: 500 kg.
- Framleiðandi: Varan var framleidd í Hveragerði en er merkt FS Dreifingu í Garðabæ.
- Geymsluskilyrði: Kælivara.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar um land allt.
Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga.
Ítarefni
- Fréttatilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, ásamt mynd
- Upplýsingasíða Matvælastofnunar um innkallanir