Salmonella greinist í alifuglum
05.03.2010
Fréttir -
Innkallanir
![]() |
Salmonella hefur
greinst í sýnum tekin við reglubundið eftirlit með slátrun hjá Matfugli
þann 23. febrúar og rannsökuð voru á Tilraunastöðinni á Keldum. Við
frekari greiningu hjá sýkladeild Landspítala reyndist Salmonella
infantis vera á ferð. Rekjanleikanúmer sláturhópsins er 011-10-03-3-22.
Alls var slátrað 5996 fuglum, 9695 kg, af því fóru 1278 kg í sölu.
Fyrirtækið brást skjótt við og innkallaði allt sem farið var til sölu í búðum. Alls komu um 400 kg tilbaka, hinn hlutinn hefur farið í neyslu. Hlutaðeigandi eftirlitsaðilum hefur verið tilkynnt um málið svo og sóttvarnarlækni. |
Ítarefni
Til baka