Lögfræðingur á stjórnsýslusviði
27.02.2009
Fréttir -
Fréttir
Matvælastofnun óskar eftir að ráða lögfræðing
á stjórnsýslusvið stofnunarinnar. Um er að ræða fullt starf á aðalskrifstofu
Matvælastofnunar á Selfossi.
Helstu verkefni:
- Úrlausn lögfræðilegra viðfangsefna stofnunarinnar,
s.s. afgreiðsla stjórnsýsluerinda, umsagna og álitsgerða
- Ráðgjöf um lögfræðileg atriði á sviði
stjórnsýsluréttar og annarra réttarsviða sem tengjast starfsemi
stofnunarinnar
- Framkvæmd og innleiðing löggjafar vegna
EES-samningsins
- Vinna við framkvæmd og innleiðingu löggjafar á
sviði stofnunarinnar
- Þátttaka í nefndum og samskipti við innlendar og
erlendar stofnanir
- Leyfisveitingar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kandídatspróf
eða meistarapróf í lögfræði
- Þekking
á EES-samningnum og framkvæmd hans æskileg
- Þekking
og starfsreynsla í opinberri stjórnsýslu æskileg
- Frumkvæði
og sjálfstæði í starfi
- Samstarfshæfni
og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð
tölvu- og tungumálakunnátta
Nánari upplýsingar um starfið veita Viktor S. Pálsson og Hafsteinn Jóh. Hannesson og í síma 530-4800. Umsóknum ásamt ferilskrá og öðrum nauðsynlegum upplýsingum skal skilað til Matvælastofnunar, Austurvegi 64, 800 Selfoss, merktum lögfræðingur eða með tölvupósti á mast@mast.is en umsóknarfrestur er til og með 18. mars 2009. Öllum umsóknum verður svarað. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.