Grænar kartöflur - gölluð vara
Ef þess er ekki gætt að forða kartöflum frá birtu taka þær fljótt á sig
grænan lit. Ljósið kemur af stað myndun blaðgrænu og gerist það hraðar við háan
hita en lágan. Rauðar kartöflur grænka líka þótt það sjáist ekki eins vel vegna
rauða litarins. Samhliða grænkuninni getur ljósið einnig valdið aukningu á
magni efnasambanda, svokallaðra glýkóalkalóíða, m.a. sólaníns, sem gefa kartöflunum
beiskt bragð og gera þær óheilnæmar til matar fari magn þeirra yfir |
Kartöflur eiga ekki að vera grænar. Það hlýtur
því að vera kappsmál fyrir metnaðarfullar matvöruverslanir að bjóða
viðskiptavinum sínum eingöngu upp á grænkufríar kartöflur. Til þess að það megi
verða þarf að huga að því á öllum stigum að hlífa kartöflunum við birtu eins og
hægt er, hjá ræktandanum, heildsöludreifingunni og loks hjá smásölunni. Þurfi
kartöflur að standa einhvern tíma á björtum og heitum geymslustað má t.d.
breiða yfir þær með svartri yfirbreiðslu en kartöflur eiga að vera sem allra
mest í kæli. Sérstaklega þarf að huga að uppstillingu vörunnar í versluninni og
þá sérstaklega þar sem kartöflurnar eru seldar í lausu. Þar þarf að sjá til
þess að sem minnst bein lýsing falli á kartöflurnar og að þær stoppi þar sem
styst við. Má t.d. skerma þær þannig af að þær séu í skugga og er ekki nokkur
vafi á að margir viðskiptavinir munu meta þær ráðstafanir sem gerðar eru til að
tryggja þeim gæðakartöflur.
Ráðleggingar:
- Framleiðendur og pökkunaraðilar eiga að
flokka grænar kartöflur frá í framleiðslu.
- Pökkunaraðilar verða að sjá til þess að
kartöflurnar séu geymdar í myrkri meðan þær eru í vörslu hjá þeim.
- Verslanir verða að sjá til þess að sem minnst
lýsing sé á kartöflum meðan þær eru í búðinni, t.d. geyma þær í dimmum
kössum sem viðskipavinir taka kartöflurnar úr eða í dökkum umbúðum.
- Neytendur ættu að geyma kartöflur á dimmum
stað heima fyrir.
- Varist að borða skemmdar og/eða grænar
kartöflur.