Góðir framleiðsluhættir
Innra gæðaeftirlit fyrirtækja sem eru á sviði framframleiðslu fóðurs skal byggja á reglum um góða framleiðsluhætti.Undir frumframleiðslu fóðurs fellur t.d. flutningur, geymsla og meðhöndlun á heyi og byggi, blöndun fóðurs, sem er eingöngu fyrir eigin bújörð, án þess að nota aukefni eða forblöndur aukefna.
Góðir framleiðsluhættir fela í sér eftirfarandi:
I. Ákvæði um hollustuhætti
- Stjórnendur fóðurfyrirtækja, sem eru ábyrgir fyrir frumframleiðslu fóðurs, skulu sjá til þess að rekstrinum sé stjórnað og hann fari þannig fram að komið sé í veg fyrir hættu, sem getur ógnað öryggi fóðurs, henni eytt eða haldið í lágmarki.
- Stjórnendur fóðurfyrirtækja skulu tryggja að frumframleiðsluvörur, sem eru framleiddar, unnar, hreinsaðar, settar í umbúðir, geymdar og fluttar á þeirra ábyrgð séu varðar gegn mengun og skemmdum. Stjórnendur fóðurfyrirtækja gera fullnægjandi ráðstafanir, einkum í því skyni:
- að halda hreinni aðstöðu, búnaði, ílátum, grindum og farartækjum, sem eru notuð til að framleiða, tilreiða, flokka, pakka, geyma og flytja fóður, og sótthreinsa þau á viðeigandi hátt að lokinni hreinsun ef nauðsyn krefur,
- að tryggja að fóður sé heilnæmt og að framleiðsla þess, flutningur og geymsla fari fram við hollustusamleg skilyrði,
- að nota hreint vatn til að koma í veg fyrir hættulega mengun,
- að koma í veg fyrir að hættuleg mengun hljótist af dýrum og skaðvöldum,
- að geyma og meðhöndla úrgang og hættuleg efni á aðskilinn og öruggan hátt þannig að ekki hljótist hættuleg mengun af,
- að tryggja að efni, sem notað er í umbúðir, valdi ekki hættulegri mengun fóðurs,
- að taka tillit til niðurstaðna hvers kyns greininga sem eru gerðar á sýnum úr frumframleiðsluvörum eða öðrum sýnum sem skipta máli í tengslum við öryggi fóðurs.
II. Skráahald
- Stjórnendur fóðurfyrirtækja skulu, á þann hátt sem við á og í viðeigandi tíma, í samræmi við eðli og umfang fyrirtækisins, halda skrár með upplýsingum sem tengjast ráðstöfunum sem gripið er til í því skyni að sporna gegn hættunni. Stjórnendur fóðurfyrirtækja skulu gera viðeigandi upplýsingar í þessum skrám aðgengilegar lögbæru yfirvaldi.
- Stjórnendur fóðurfyrirtækja skulu einkum halda skrár um:
- alla notkun plöntuvarnarefna og sæfiefna,
- notkun erfðabreytts fræs,
- öll tilvik skaðvalda eða sjúkdóma sem koma upp og geta haft áhrif á öryggi frumframleiðsluvara,
- niðurstöður hvers kyns greininga, sem gerðar eru á sýnum, sem eru tekin úr frumframleiðsluvörum, eða öðrum sýnum sem eru tekin til sjúkdómsgreiningar og skipta máli í tengslum við öryggi fóðurs,
- uppruna og magn fóðurs sem tekið er við ásamt ákvörðunarstað og magn fóðurs sem er afhent.